Það var mikið um að vera í kringum KM þjónustuna í dag þegar Vorlestin mætti á svæðið. Birfreiðaskoðun Frumherja var einnig með sína starfsemi á verkstæðinu í dag og var því brugðið á það ráð að staðsetja Vorlestina á plani KM þjónustunnar hinum megin við veginn á Vesturbraut 15. Það var því ekki mikið um laus bílastæði um tíma og einhverjir brugðu á það ráð að leggja hjá nágrönnum okkar í Vegagerðinni. Sjá myndir í myndamöppu fyrir maí mánuð.
KM þjónustan hefur keypt húsnæðið að Vesturbraut 15 í Búðardal þar sem Vínbúðin er til húsa og verður rekstur Vínbúðarinnar áfram á sama stað. Til að byrja með verður minna bil hússins notað undir vinnustofu.
KM þjónustan í Búðardal auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar:
- bifvélavirkja eða hæfum viðgerðarmanni á verkstæði. Meirapróf er kostur.
- starfsmanni í afgreiðslu í verslun KM þjónustunnar.
Nánari upplýsingar veitir Kalli í síma 8956677
Þýskir ferðamenn höfðu samband við Kalla í KM þjónustunni upp úr miðnætti í nótt og óskuðu eftir dráttarbílaþjónustu. Sögðust þeir vera fastir og gáfu upp vegnúmer 417 og kom í ljós að þeir voru staddir við Bláfjallaveg. Sögðust þeir hafa fengið þetta símanúmer frá öðrum erlendum ferðamönnum fyrir norðan daginn áður, ekki fengust ítarlegri upplýsingar um hvar fyrir norðan þeir voru þá staddir. Þar sem dráttarbílaþjónusta KM þjónustunnar er talsvert fjarri Bláfjallavegi var ferðamönnunum leiðbeint með hvernig best væri að snúa sér til að fá aðstoð nær þeirra svæði.
Þessa dagana standa yfir framkvæmdir í KM þjónustunni en verið er að stækka við búðarhlutann inn af lager. Vegna framkvæmdanna hefur tímabundið þurft að þrengja mikið að í fóðurafgreiðslunni og það á köflum tafið afgreiðslu. En framkvæmdirnar koma þó ekki í veg fyrir að hægt sé að afgreiða út vörur og allar pantanir verða áfram við það sama.
Upplýsingar um skoðunardaga hjá Frumherja árið 2016 í Búðardal eru komnar á vefinn. Sjá nánar undir hnappnum "Frumherji".
Við vekjum athygli á að lokað er í verslun KM þjónustunnar föstudaginn 8. janúar og mánudaginn 11. janúar skv. auglýsingu sem send var út fyrir jólin. Ath. verkstæði er opið.
Alvarlegt bílslys varð milli Fellsenda og Erpsstaða í dag þar sem vöruflutningabíll lenti á hliðinni utan vegar en hálkublettir og mikið hvassviðri var á slysstað. Allir starfsmenn verkstæðis KM þjónustunnar voru boðaðir á slysstað, fjórir á vegum Slökkviliðs Dalabyggðar og einn til að sinna dráttarbílaþjónustu. Vegna þessa þurfti að loka verkstæðinu eftir hádegi en starfsfólk verslunar var á staðnum til að taka á móti viðskiptavinum og gera grein fyrir aðstæðum. Sjá nánar frétt á Skessuhorni: Alvarlegt umferðarslys í Miðdölum
Starfsfólk KM þjónustunnar óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi árin.
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Nú í nóvember hefur Sæfrost í samstarfi við KM þjónustuna gert tilraun til að landa beitukóngi við höfnina í Búðardal. Kranabíll KM þjónustunnar hefur verið notaður til að hífa upp körin og hefur það reynst vel. Einu sinni hafa menn þó þurft að fresta löndun þar sem báturinn rakst niður í grjót þegar stóð á háfjöru og verður því að gæta að sjávarföllum þegar landað er. Sjá myndir í myndamöppu nóvembermánaðar.