Bifvélavirki eða vanur viðgerðarmaður óskast til starfa hjá KM þjónustunni Búðardal.
Um er að ræða fjölbreytt starf í almennum viðgerðum. Áhugasamir hafi samband við Karl Inga Karlsson í síma 8956677.
Verslun KM þjónustunnar er lokuð vegna vörutalningar fimmtudaginn 4. janúar og föstudaginn 5. janúar. Verslunin opnar aftur mánudaginn 8. janúar.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. KM þjónustan
Aukaopnun verður í KM þjónustunni laugardaginn 21. október kl. 13-17 á haustfagnaði Félags sauðfjárbænda í Dölum. Tilboð verður á ýmsum fatnaði frá 66°Norður og að auki verður Lífland með kynningartilboð á völdum vörum.
KM þjónustan í Búðardal auglýsir eftir bifvélavirkja eða hæfum viðgerðarmanni á verkstæði í fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir Kalli í síma 8956677
www.km.is
KM þjónustan í Búðardal auglýsir eftir starfsfólki í sumarafleysingar:
- bifvélavirkja eða hæfum viðgerðarmanni á verkstæði. Meirapróf er kostur.
- starfsmanni í afgreiðslu í verslun KM þjónustunnar.
Nánari upplýsingar veitir Kalli í síma 8956677
KM þjónustan er 17 ára í dag 1. mars. Af því tilefni varð að taka mynd af fyrrum sameigendum en fyrir tilviljun var Klúkubóndinn mættur í Dalina og þar með KM bræður sameinaðir á afmælisdaginn.
Við viljum vekja athygli á að við erum nú með Ad Blue 210 lítra tunnur á lager.
Við opnum fyrr eftir vörutalningu! :) Verslun KM þjónustunnar opnar kl. 13:00 í dag eftir vörurtalningu (9. janúar 2017).
Það var glatt á hjalla í skötuveislu KM þjónustunnar á Þorláksmessu og góður fjöldi sem kom og bragðaði á kæstri skötunni. Einnig gátu menn gætt sér á tvíreyktu hangikjöti og reyktum rauðmaga frá Stað í Reykhólasveit og Verkstæðis-Binni bauð upp á siginn fisk. Rannveig Árnadóttir lagði til heimabakaður rúgkökur og eins og fyrri árin mætti Fanney Kristjáns með heimabakað rúgbrauð. Fyrir jólin hafa margir komið færandi hendi með konfekt, drykki og annað góðgæti sem lagt var á borð á Þorláksmessu og þökkum við í KM þjónustunni kærlega fyrir. Myndir frá skötuveislunni eru komnar í myndamöppu desembermánaðar.