Opinn jólasveinahittingur í KM

Skrifað 12 December 2019


Skyrgámur boðar til opins jólasveinafundar í KM þjónustunni milli kl. 16 og 17 föstudaginn 13. desember.
Allir jólasveinar eru boðaðir til fundar og auk þess verður vel tekið á móti gestum með góðgæti.
Skyrgámur sendi fréttatilkynningu í Skessuhorn sem fjallaði um fundinn, smelltu hér til að sjá frétt Skessuhorns:

Ert þú á lista yfir óþekka?

Skyrgámur og Bjúgnakrækir verða í KM þjónustunni í Búðardal á morgun, föstudaginn 13. desember, þar sem þeir ætla að taka stöðuna í upphafi vertíðar.
Í tilkynningu sem Skyrgámur sendi Skessuhorni hvatti hann bræður þeirra ennig til að mæta. „Það eru nokkur atriði sem við þurfum að fara í gegnum, til dæmis óþekktarlistann, en þar hefur orðið töluverð breyting frá í fyrra,“ segir Skyrgámur í tilkynningunni. Þá segir hann einnig að þeir þurfi að ákveða hvernig farið verður með kertin sem Kertasníkir kemur með til baka á jólanótt. „Þið munið hvernig fór í fyrra, þegar við vorum nærri búnir að kveikja í bílskúrnum hjá Gilbert því gastækin hans voru of öflug til að kveikja á kertunum,“ segir Skyrgámur og bætir því við að einnig þurfi að taka ákvörðun um skiptingu arðs. „Vonumst til að þið sjáið ykkur fært að mæta drengir. En þeir ykkar sem ekki komast, þá er einnig í boði að tala saman í gegnum Facebook síðuna mína,“ segir Skyrgámur í skilaboðum til bræðra sinna.
Öllum er frjálst að koma og hitta bræðurna í KM þjónustunni á milli kl 16 og 17 á föstudaginn og verða þeir jafnvel með eitthvað góðgæti í poka fyrir gesti. Þeir sem eru hræddir um að vera á listanum yfir óþekka geta tékkað á því og reynt að fá það leiðrétt. Listinn yfir óþekka verður hengdur upp í KM þjónustunni miðvikudaginn 11. desember. (texti afritaður af www.skessuhorn.is)